Einar er með cand.oecon gráðu frá Háskóla Íslands og MBA frá RSM, Erasmus University í Rotterdam. Hann hóf störf hjá Íslandsbanka 1993 og starfaði þar til loka ársins 2006, en tók þá til starfa fyrir Kaupþing. Einar starfaði hjá Kaupþingi þar til í nóvember 2009 þegar hann gekk til liðs við H.F. Verðbréf. Einar býr yfir mikilli stjórnunarreynslu á sviði fyrirtækjaráðgjafar, fjárstýringar, gjaldeyris-, afleiðu- og verðbréfaviðskipta. Hann lauk prófi í verðbréfaviðskiptum árið 2001 og er með ACI Diploma frá The Financial Markets Association. Einar hefur 6 ára reynslu af fyrirtækjaráðgjöf og vinnu við fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja. Hann hefur kennt verðmat fyrirtækja í Viðskiptaháskólanum á Bifröst.
|
Bjarki er cand. scient. í verkfræði frá Háskóla Íslands og Dr. ing. frá NTNU í Noregi. Hann hefur gengt ýmsum stjórnunarstörfum á sviði fjármála, nýsköpunarstarfsemi og háskólastarfs, hjá SJ/Glitni, Askar Capital, Kaupþingi, Nýherja og Háskólanum í Reykjavík. Bjarki hefur umtalsverða reynslu af fjárhagslegri endurskipulagningu fyrirtækja, alþjóðlegri bankastarfsemi og viðskiptaþróun í Evrópu, Bandaríkjunum, Asíu og miðausturlöndum. Bjarki hefur þróað háskólanám í fjölmörgum greinum, m.a. fjármála- og rekstrarverkfræði, auk þess að hafa haldið fyrirlestra við háskóla innanlands sem erlendis. Bjarki hefur setið í stjórnum fjölmargra alþjóðlegra fyrirtækja, eftirlitskyldra aðila, lífeyrissjóða og rannsóknarsjóða. Bjarki hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum og er viðurkenndur ráðgjafi á First North.
|
Einar Númi er með B.Sc. gráðu í iðnaðarverkfræði frá DTU og M.Sc. gráðu í rekstrar- og fjármálaverkfræði frá Stanford University. Hann hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum og hefur umtalsverða reynslu af alþjóðlegum fjárfestingum, bankastarfsemi og gerð fjármálalíkana. Einar Númi hóf störf hjá fyrirtækjaráðgjöf H.F. Verðbréfa í júní 2011, en hann hefur fengist við í fyrirtækjaráðgjöf og fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja frá árinu 2008. Auk starfa sinna hjá H.F. Verðbréfum fæst Einar Númi við kennslu í fjármálum fyrirtækja við verkfræðideild Háskólans í Reykjavík.
|