Fyrirtækið
H.F. Verðbréf hf. var stofnað 16da desember 2003 og fékk starfsleyfi til verðbréfamiðlunar í febrúar 2004. Í upphafi beindist starfsemin aðallega að miðlun hlutabréfa í utanþingsviðskiptum á milli fagfjárfesta. Haustið 2004 var fyrirtækinu falið að hafa umsjón með stofnfjármarkaði SPRON sem þá var hleypt af stokkunum. Í september 2006 fékk fyrirtækið aðild að Kauphöll Íslands og fór þá að miðla skuldabréfum að auki. Í janúar 2007 bauð fyrirtækið viðskiptavinum upp á beinan markaðsaðgang að Kauphöll Íslands, fyrst allra fjármálafyrirtækja. Í mars 2007 fékk fyrirtækið starfsleyfi sem verðbréfafyrirtæki.Fyrirtækið stundar ekki eigin viðskipti og starfsmenn eiga ekki persónulega viðskipti með einstök verðbréf.
Fyrirtækið sinnir eingöngu fagfjárfestum.
Stofnandi og framkvæmdastjóri er Halldór Friðrik Þorsteinsson, cand. oecon. og BA í heimspeki frá Háskóla Íslands. Hann hóf störf hjá verðbréfamiðlun Kaupþings 1994, hlaut réttindi sem löggiltur verðbréfamiðlari 1998 og réttindi til verðbréfamiðlunar í New York árið 2000. Hann starfaði við einkabankaþjónustu Kaupþings S.A. í Luxemborg frá árinu 1998 þar til hann stofnsetti Kaupthing Securities Inc. fyrir Kaupþing í New York árið 2000 og veitti því forstöðu til 2003.
Stjórn:
Gunnar H. Sverrisson, stjórnarformaður
Hrönn Greipsdóttir
Kári Kárason
Endurskoðandi:
Endurskoðun og ráðgjöf ehf.
Uppgjör verðbréfaviðskipta:
Arion verðbréfavarsla hf.



