Fyrirtækið

H.F. Verðbréf er verðbréfafyrirtæki sem starfað hefur frá febrúar 2004 á grunni starfsleyfis frá Fjármálaeftirlitinu, sbr. lög nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Fyrirtækið var stofnað 16. desember árið 2003 og sinnir fagfjárfestum á sviði verðbréfamiðlunar og fyrirtækjaráðgjafar og er aðili að Nasdaq OMX kauphöllinni í Reykjavík. Félagið hefur einnig hlotið samþykki sem viðurkenndur ráðgjafi á First North markaðnum.

H.F. Verðbréf fylgir viðurkenndum stjórnarháttum í samræmi við leiðbeiningar Viðskiptaráðs Íslands, Samtaka atvinnulífsins og Nasdaq OMX á Íslandi. Stjórnarháttayfirlýsingu félagsins má finna hér.

Starfsleyfi

Starfsleyfi fyrirtækisins nær til eftirfarandi þjónustu (starfsheimilda) skv. 25. gr. laga um fjármálafyrirtæki:

  • Móttöku og miðlunar fyrirmæla frá viðskiptavinum um einn eða fleiri fjármálagerninga og framkvæmdar fyrirmæla fyrir reikning þriðja aðila.
  • Fjárfestingarráðgjafar.
  • Umsjón með útboði fjármálagerninga án sölutryggingar.

Viðbótarþjónusta:

  • Vörslu og stjórnunar í tengslum við einn eða fleiri fjármálagerninga fyrir reikning viðskiptavinar, þ.m.t. vörslu fjármálagerninga og tengdrar þjónustu, svo sem vegna fjármuna eða trygginga.
  • Ráðgjafar til fyrirtækja um uppbyggingu eigin fjár, stefnumótun og skyld mál og ráðgjafar og þjónustu varðandi samruna fyrirtækja og kaup á þeim.
  • Gjaldeyrisþjónustu ef umrædd viðskipti eru liður í fjárfestingarþjónustu.
  • Fjárfestingarrannsókna og greininga eða annarra forma af almennum ráðleggingum í tengslum við viðskipti með fjármálagerninga.

heilindi. fagmennska.

Heilindi og fagmennska eru þau gildi sem H.F. Verðbréf hefur að leiðarljósi í allri starfsemi sinni.

Heilindi sýnir starfsfólk H.F. Verðbréfa með því að láta hagsmuni viðskiptavinarins ætíð sitja í fyrirrúmi. Ennfremur með því að standa við orð sín og segja það sem því býr í brjósti. Þá ber að halda trúnað um öll viðkvæm málefni fyrirtækisins, viðskiptavini þess og viðskipti þeirra. Fyrirtækið stundar ekki eigin viðskipti í gegnum veltubók og er starfsmönnum almennt óheimilt að eiga viðskipti í eigin þágu með verðbréf og gjaldmiðla.
 
Fáguð vinnubrögð í texta og tölum bera fagmennskunni best vitni. Við viljum vera þekkt fyrir áreiðanleika, hugvitsamlegar lausnir og stundvísi. Fjármál eru okkar fag.


 

H.F. Verðbréf hf.    |    kt. 581203-2760    |    Skólavörðustíg 11    |    101 Reykjavík    |    Sími 585 1700    |   Fax 585 1701   |   info@hfv.is