fjármálagerningaR sem teknir hafa verið til viðskipta á NASDAQ OMX Iceland eða First North
Hlutabréf
- Uppgjörsdagur er þriðja viðskiptadag eftir að viðskipti áttu sér stað (T+3).
- Greiðslur fyrir hlutabréf skulu hafa borist inn á bankareikning HFV fyrir kl. 9:45 á uppgjörsdegi.
- Hlutabréf skulu afhent HFV fyrir kl. 9:45 á uppgjörsdegi. Sendi viðskiptavinur uppfjörsfyrirmæli í TRS kerfi Verðbréfaskráningar íslands innan tilskyldra tímamarka telst það þó fullnægjandi.
Skuldabréf
- Uppgjörsdagur er næsta viðskiptadag eftir að viðskipti áttu sér stað (T+1).
- Greiðslur fyrir skuldabréf skulu hafa borist inn á bankareikning HFV fyrir kl. 9:45 á uppgjördegi.
- Skuldabréf skulu afhent HFV fyrir kl. 9:45 á uppgjörsdegi. Sendi viðskiptavinur uppgjörsfyrirmæli í TRS kerfi Verðbréfaskráningar Íslands innan tilskyldra tímamarka telst það þó fullnægjandi.
óskráðir fjármálagerningar
- Uppgjörsdagur er samkvæmt samkomulagi.
- Greiðslur fyrir fjármálagerninga skulu hafa borist inn á bankareikning HFV fyrir kl. 9:45 á uppgjörsdegi nema samkomulag sé gert um annað.
- Fjármálagerningar skulu afhentir HFV fyrir kl. 9:45 á uppgjörsdegi nema samkomulag sé gert um annað.
fjármálagerningar sem teknir hafa verið til viðskipta í erlendri kauphöll eða markaðstorgi
- Uppgjörsdagur fer eftir reglum viðkomandi markaðar og er viðskiptavini tilkynnt um uppgjörsdag í tengslum við beiðni sína um viðskipti.
- Greiðslur fyrir fjármálagerninga skulu hafa borist inn á bankareikning HFV skv. samkomulagi.
- Fjármálagerninga skulu afhentir HFV skv. samkomulagi.
Fyrirvari: Leiðbeiningar þessar geta breyst án fyrirvara. HFV er jafnframt ávalt heimilt að gera það að skilyrði fyrir viðskiptum að greiðsla berist fyrr.

