Online trader
Markaðsviðskipti H.F. Verðbréfa bjóða völdum viðskiptavinum félagsins beinan aðgang að kauphöll Nasdaq OMX á Íslandi, á afar hagstæðum kjörum. Haustið 2006 varð félagið fyrst til að bjóða upp á þessa þjónustu á Íslandi og hefur gert það óslitið síðan.
Hvað er beinn markaðsaðgangur?
Með beinum markaðsaðgangi er átt við ferli sem gerir viðskiptavinum kleift að skrá kaup- og/eða sölutilboð með rafrænum hætti í viðskiptakerfi kauphallar, án beinnar milligöngu miðlara hjá markaðsviðskiptum H.F. Verðbréfa. Viðskiptavinur getur fylgst mjög náið með sínum pöntunum og viðskiptum, sem og markaðinum í heild. M.a. er hægt að fylgjast með hlutabréfa-, skuldabréfa og gjaldeyrismörkuðum í rauntíma, en viðskiptavinir geta valið úr fjölda markaða.
Viðskipta og upplýsingakerfi
Í þessu ferli notast viðskiptavinir við sérstakan hugbúnað, The Online Trader frá norska hugbúnaðarhúsinu Infront AS. Kerfið er ætlað fagaðilum á fjármálamarkaði sem vilja fylgjast náið með verðþróun skráðra bréfa og vilja eiga þess kost að eiga viðskipti á skjótan og einfaldan hátt. Notendahópur kerfisins er stór og samanstendur af aðilum á borð við:
- Lífeyrissjóði
- Tryggingarfélög
- Fjárfestingarfélög
- Eignastýringar
- Rekstrarfélög verðbréfasjóða
- Fjársterka einstaklinga
- Fyrirtæki
Kerfið býður notendum einnig aðgang að sögulegum upplýsingum um verðþróun skráðra bréfa og öflug tæknigreiningartól til að vinna úr þeim gögnum. Einnig má nálgast fréttir frá ýmsum netmiðlum í kerfinu á borð við vb.is, mbl.is o.fl.
Einfalt og öruggt
Hugbúnaðurinn er afar einfaldur í uppsetningu. Notendur þurfa enga sérstaka netþjóna eða annan sértækan tölvubúnað. Allt sem þarf er aðgangur að internet tengingu. Öll samskipti er varða kaup- og sölupantanir og viðskipti notanda eru í samræmi við staðla um örugg og dulkóðuð internet samskipti. Þegar viðskiptavinur hefur lokið daglegum viðskiptum sínum fær hann viðskiptakvittun í tölvupósti.
Smellið hér til að ná í Online Trader.

