Allt frá stofnun félagsins hafa markaðsviðskipti verið eitt aðalviðfangsefni H.F. Verðbréfa. Fyrirtækið hefur markað sér sess meðal helstu stofnana- og fagfjárfesta landsins, sem traustur og áreiðanlegur þjónustuaðili, og verið í fararbroddi íslenskra fjármálafyrirtækja í að brjóta ný lönd í þjónustu við kröfuharða viðskiptavini. Þannig var félagið fyrst íslenskra
verðbréfafyrirtækja til þess að bjóða beinan markaðsaðgang að kauphöllum og hefur haldið því óslitið áfram síðan.
Sérfræðingar H.F. Verðbréfa búa yfir áralangri reynslu af markaðsviðskiptum og hafa sérhæft sig í að mæta þörfum fag- og stofnanafjárfesta. Þessi reynsla endurspeglast í því viðamikla tengslaneti innlendra og erlendra fjármálastofnana og fjárfesta, sem félagið hefur komið sér upp, og skilar sér í fyrsta flokks þjónustu.
Miðlun verðbréfa
|
Beinn markaðsaðgangur
|
Skuldabréfaútgáfur
|
