H.F. Verðbréf veita opinberum stofnunum jafnt sem einkaaðilum ráðgjöf um samruna og fyrirtækjakaup. Áhersla er lögð á að vinna náið með viðskiptavinum í gegnum ferlið og veita þeim stuðning og ráðgjöf svo þeir megi ná markmiðum sínum.
Sérfræðingar H.F. Verðbréfa framkvæma verðmat og útbúa skýrslur um gangvirði eigna og annað söluefni. Einnig veitir fyrirtækið ráðgjöf við almenn útboð.
Reynslan hefur sýnt að góður undirbúningur er nauðsynlegur grundvöllur ákvarðanatöku og skilvirks og árangursríks ferlis. Þess vegna hefjast verkefni yfirleitt á áðurnefndri vinnu, sem m.a. felur í sér bráðabirgðaverðmat á fyrirtækinu sem um ræðir, greiningu mikilvægra atriða og tillögu um möguleg næstu skref.


