Hlutafjárútboð, skuldabréfaútgáfur og skráning á markað

H.F. Verðbréf aðstoða fyrirtæki, sveitarfélög og stofnanir við öflun fjármagns með hlutafjárútboðum og útgáfu skuldabréfa. Á meðal þeirra atriða sem þarf að taka tillit til í tengslum við hlutafjárútboð eða skuldabréfaútgáfur eru tegund verðbréfs sem gefa á út, hæfilegt útboðsgengi og hvaða tímasetning henti best. Lögð er rík áhersla á að ráðast í ítarlega greiningu og undirbúning fyrir útgáfu. 

H.F. Verðbréf veitir eftirfarandi þjónustu í tengslum við öflun fjármagns: 

  • Greining á fjárhagsstöðu útgefanda
  • Samráð um form fjármögnunar
  • Samskipti við fjárfesta
  • Gerð útgefendalýsingar
  • Birting upplýsinga um útgefanda
  • Gengið frá skráningu á markað

Ferli við hlutafjárútboð/skuldabréfaútgáfu:

H.F. Verðbréf hf.    |    kt. 581203-2760    |    Skólavörðustíg 11    |    101 Reykjavík    |    Sími 585 1700    |   Fax 585 1701   |   info@hfv.is