Fjárhagsleg endurskipulagning

H.F. Verðbréf búa yfir þeirri reynslu sem þarf til að hámarka verðmæti og stýra flókinni endurskipulagningu, enda hafa sérfræðingar fyrirtækisins komið að endurskipulagningu fjölda stórra og umfangsmikilla fyrirtækja.

Nálgun við fjárhagslega endurskipulagningu veltur á eðli og umfangi erfiðleikanna sem fyrirtækið glímir við. Mikilvægur þáttur í fjárhagslegri endurskipulagningu er að ákvarða verðmæti fyrirtækisins. Þannig fæst skýr mynd af fjárhagslegum hagsmunum allra viðkomandi aðila, þ.e.a.s. kröfuhafa og hluthafa. Yfirleitt er markmið fjárhagslegrar endurskipulagningar að tryggja að viðkomandi félag geti staðið við skuldbindingar sínar og eigi nægilegt laust fé til framtíðar litið.

Við leggjum áherslu á uppbyggingu trausts á milli hagsmunaaðila og trúverðugar og sanngjarnar lausnir.

 

Endurskipulagningarferlið:

Fjárhagsleg endurskipulagning

H.F. Verðbréf hf.    |    kt. 581203-2760    |    Skólavörðustíg 11    |    101 Reykjavík    |    Sími 585 1700    |   Fax 585 1701   |   info@hfv.is