Fjármögnunar- og skuldaráðgjöf

H.F. Verðbréf veitir þjónustu sem miðar að því að aðstoða viðskiptavini við fjármögnun og endurfjármögnun. Í þessu felst m.a. greining á núverandi fjármagnsuppbyggingu og fjármögnunarvalkostum, svo sem útgáfu hlutafjár, skuldafjármögnun og lokuðum verðbréfaútboðum.

H.F. Verðbréf veita ráðleggingar og aðstoð við skuldastýringu, sem m.a. felur í sér eftirlit með skilmálum og samningaviðræðum við lánveitendur. Sérfræðingar okkar hafa djúpstæða þekkingu og kunnáttu í að meta hvers konar fjármögnun hentar best við tilteknar aðstæður og þeir búa yfir umfangsmikilli reynslu á sviði fjármögnunarverkefna og hefðbundinnar fjármögnunar fyrirtækja. Lögð er áhersla á greiningu og ferlastjórnun. Í þessu felst m.a.:

  • Greining núverandi fjármagnsuppbyggingar
  • Þróun fjármögnunarstefnu   
  • Gerð nákvæms fjárhagslíkans     
  • Undirbúningur kynninga 
  • Skipulagning fjármögnunarsamninga

H.F. Verðbréf hf.    |    kt. 581203-2760    |    Skólavörðustíg 11    |    101 Reykjavík    |    Sími 585 1700    |   Fax 585 1701   |   info@hfv.is